Svart eða ekki svart!

Þessi kom á Bylgjunni í gær. Helv... góður....

 Kúba hvað !

Ég lenti í þvi að það gaf sig pípulögn um daginn hjá mér. Enginn skaði því ég náði í snatri að loka inntaki og hringdi í pípara sem var fljótur að bregðast við. Einum og hálfum tíma síðar var allt komið í lag, píparinn skrifaði á mig reikning og ég greiddi kr. 15.060.- fyrir vinnuna. Semsagt 12.000.- kr + 25,5% vsk.

Nú er ég lánsamur maður og greiði skatt í hæsta skattflokki og því er staðgreiðsluprósenta mín 46,12%. Samkvæmt því þarf ég að vinna mér inn kr. 27.951. - til að greiða hinum hjálpsama pípara. Við stöndum jú báðir skil á okkar opinberu gjöldum.

En hvað gerist hans megin? Í fyrsta lagi stendur hann skil á innheimtum virðisauka sem nemur 3.060.- kr. Eftir standa tekjur uppá kr 12.000.-. sem verða hluti af launagreiðslu píparans um næstu mánaðarmót. Gefum okkur að staðgreiðsla hans sé 40,12%. Af 12.000.- krónunum fær hann því 7.185.- krónur útborgað og restin fer í staðgreiðslu skatta.

Ég vann mér inn 27.951 krónu, greiddi skatt, greiddi píparanum, hann greiddi skatt og sat uppi með 7.185 kr. Tæplega 75% peninganna hurfu í skatta.

Guð hjálpi svo píparanum ef honum dettur í hug að nota peningana í í einhverja neyslu. Það allra versta væri ef hann langaði í koníaksflösku því af útsöluverði sterks áfengis tekur ríkið 75% og þá er álagning ÁTVR ekki tekin inn í myndina. Ég þyrfti þá að vinna mér inn kr. 27.951.-, píparinn fengi koníaksflösku sem kostar ríkið 575 krónur í innkaupum og skatturinn tekur rest eða 27.376.- krónur. Heildarskattheimta er því orðin 97%.

Við bíðum þess nú að Steingrímur J. Sigfússon og skattahöfundur hans, Indriði Þorláksson, skipti sér af málinu og bendi á að þessi 3% sem eftir sitja séu vannýttur tekjustofn hins opinbera sem skoða þurfi betur.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já þetta er mjög merkileg pæling hjá þér og það sem verst er þá á hún fullan rétt á sér. Skattastefna núverandi ríkisstjórnar er galin og það þarf að endurskoða hana áður en neðanjarðarhagkerfið tekur yfir eins og alsiða er td. í Grikklandi.

Magnús Orri Einarsson (IP-tala skráð) 1.10.2010 kl. 21:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband